Færsluflokkur: Enski boltinn

Bull

Er þetta varalið Arsenals: Abou Diaby, Bacary Sagna, Cesc Fabregas, Eduardo, William Gallas,
Alex Hleb, Denilson, Mathieu Flamini, Gilberto, Lukasz Fabianski, Emmanuel
Adebayor, Nicklas Bendtner, Armand Traore, Justin Hoyte, Theo Walcott,
Vito Mannone.

Þetta er hópurinn fyrir leikinn í kvöld og virðist alls ekki um varalið flóttamannanna frá Woolwich að ræða.

Áfram Spurs


mbl.is Fyrsti sigur Tottenham í níu ár?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arsenal Íslandsmeistarar?

Ég vona að ArseDevil al verði nú ekki Íslandsmeistarar!
mbl.is Alex Ferguson: Ekki tveggja liða barátta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmalaus fréttamennska

Í fyrirsögn segir "Waddle vill ekki taka við landsliðinu." Í greininni er talað um Glenn Hoddle!. Myndin er sannarlega af Hoddle, en undir henni stendur "Glenn Woddle"!!! Glenn Hoddle er ekki Chris Waddle þótt þeir hafi spilað saman í Spurs. Ekki veit ég hver Woddle er! Kannski á þetta að vera grín? Þetta er þó skammarlegt á svona netmiðli!

 Jónas


mbl.is Hoddle vill ekki taka við landsliðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jol sagði upp fyrir leikinn

Martin Jol var ekki rekinn. Hann lagði inn uppsögn fyrir leikinn gegn CF Getafe og var hún samþykkt! Ramos frá Seville tekur við. Gustavo Poyet verður aðstoðarmaður hans. Áfram Spurs!

Takk Jol fyrir góðan árangur með liðið!


mbl.is Martin Jol hættur með Tottenham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Boðflennur á ferð í Norður-Lundúnum

Á morgun tekur stolt Norður-Lundúna á móti boðflennunum frá Woolwich í Suður-Lundúnum! Það er kominn tími á að hinir hvítklæddu lúskri á ryðguðu fallbyssunum, sem einhverja hluta vegna voru ekki fargað strax eftir fyrri heimsstyrjöldina, árið 1919 þegar Woolwich Arsenal svindlaði sér inn í efstu deild.  

Það verður ískrandi hljóð í sundurtættum fallbyssumálmi þegar hinir stoltu hanar tæta þær í sig og senda aftur suður á boginn með ruslabílum Lundúnaborgar.

Come on you mighty Spurs!! 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband