Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
3.3.2009 | 10:39
Meira bullið.
Það er alveg ótrúlegt hversu mikið fréttamennsku hefur sett niður. Næst skrifa þeir um tröll og huldufólk sem dansi á götum úti og kveiki í öllu lauslegu og ísbirni sem leggist á fólk við tjörnina.
Kv. Jónas Rafnar
Wall Street á túndrunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 10:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2009 | 12:13
Bjargráðasjóður heimilana
Ég er að velta fyrir mér hvort að það væri ekki bjargráð fyrir ríkisstjórnina að leggja um 10 milljarða í bjargráðasjóð til að veita fólki í tímabundnum greiðsluerfiðleikum lán á föstum vöxtum (hugsanlega 10%) án afborgana í 1 - 3 ár. Á þann hátt getur fólk tryggt sér að ekki verði gengið að eignum þess þrátt fyrir tímabundna erfiðleika sökum atvinnuleysis, hækkunar afborgana lána ofl. Þegar ástandið í þjóðfélaginu batnar getur fólk greitt þetta tilbaka á nokkrum árum og hugsanlega endurfjármagnað í gegnum Íbúðarlánasjóð þegar veðhlutfall batnar í fasteignum viðkomandi og afborganir lána lækka vegna styrkingu krónunnar eða upptöku nýs gjaldmiðils. Með þessu móti væri mögulegt á sanngjarnan hátt að koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot heimila. Þessi aðferð er einföld og þarfnast ekki inngrip í vísitölutryggingu lána.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)